iStock-504427552.jpg

Manor bloggið

Það er stöðug þróun alla daga

Hér flytur þróunarteymið reglulega fréttir af nýjungum.

 

Gervigreind hjálpar við textagerð

Oft eru tímafærslur skrifaðar í snatri og lítill tími laus til að lagfæra málfar, stafsetningu eða önnur smáatriði. Þegar kemur að útgáfu reiknings eða samantekt á vinnuskýslu fer oft nokkur tími í að lagfæra texta. Nú er þetta verkefni orðið leikur einn í Manor. Við vorum að bæta við afar vönduðu tungumálalíkani sem leysir þetta verkefni með einum músarsmelli.

 

Aðstoð við staka færslu

Þegar þú skrifar staka færslu í Manor þá er hnappur við höndina sem lagar fyrir þig textann.

 
 

Hér sjáum við tímafærslu þar sem mikið er um villur í texta, allt frá innsláttarvillum, stafsetningarvillum og málfarsvillum. Ekkert mál. Þú smellir á bláa hnappinn og færð lagfærða útgáfu af textanum í snatri.

 
 
 

Hér er komin leiðrétt útgáfa þar sem málfar, stafsetning og annað er eins og best verður á kosið.

 

Aðstoð við hundruðir færslna

Þeir sem gefa út reikninga eða vinnuskýrslur þekkja vel þá vinnu að laga margar færslur.

Nú er það ekkert mál og þú lagar allar færslurnar með einum smelli.

 

Hér erum við að gera stakan reikning. Á honum eru margar færslur sem eru meira og minna illa skrifaðar. Smellum þá á Breyta völdum færslum.

 
 
 

Þá sjáum við viðmót til að laga margar færslur. Þar er blái hnappurinn, smellum á hann og allir textarnir eru lagaðir á augabragði. Ef þér líst ekki á úrbæturnar má alltaf hætta við með sama hnappi.

 
 

Besta líkanið í íslensku

Við völdum það mállíkan sem hefur mesta getu í íslensku samkvæmt reglulegum mælingum úttektaraðila á færni líkana eftir tungumálum.

Aðeins úrbætur á texta

Líkanið breytir aldrei innihaldi eða uppbyggingu textans til að tryggja að merking og skilaboð haldist óbreytt. Aðeins er um að ræða lagfæringar á innslætti, stafsetningu og málfari.

 

Talar sex tungumál

Mállíkanið skilur strax tungumál textans sem verið er að lagfæra og heldur sig við það tungumál. Þannig eru öll tungumálin í Manor að fullu studd í þessari virkni.

Vandað og eðlilegt mál

Sérstaklega er lagt upp með að skila vönduðum texta og tryggja samræmi og samfellu í textanum í heild sinni. Sú nálgun mun koma að góðum notum þegar unnið er með margar færslur í stærri verkum.


Kerfisstjóri hefur fullt vald

Kerfisstjóri hvers fyrirtækis í Manor hefur vald að kveikja eða slökkva á þessari virkni fyrir sína notendur.

 
  1. Notandi með réttindi kerfisstjóra fer í Manor > Kerfisstjórn > Tengingar

  2. Þar má sjá tenginguna LLM Úrbætur á texta

  3. Smellið á Gera virka eða Gera óvirka.

  4. Sé tengingin virk sjá allir notendur hnappa til að bæta texta.

  5. Ekki þarf að virkja nein frekari réttindi eða aðgangsheimildir.

  6. Tengingin er annað hvort virk/óvirk fyrir Manor-eintakið í heild sinni.

 

Vönduð persónuvernd

Manor nýtir mállíkan frá Google sem rekið er á netþjónum Google í Evrópu. Hvert notkunartilvik er einskiptis og með skýrum ramma um að gögn eru hvorki geymd þar né notuð til þjálfunar. Manor er með vinnslusamning við Google Cloud EMEA Limited sem er skráð á Írlandi og er Google Cloud því skilgreindur undirvinnsluaðili hjá Manor.

 
Friðbjörn Orri Ketilsson