Tengingar við bókhaldskerfi
Manor tengist rafrænt öllum helstu bókhaldskerfum í gegnum vefþjónustu og fara sölureikningar sem gerðir eru í Manor beint inn í bókhaldskerfið, bókast sjálfvirkt og út fara rafrænir reikningar og/eða tölvupóstur með reikningi til viðskiptavina.
DK
Manor tengist beint við DK í gegnum vefþjónustutengingu. Um leið og reikningur er gerður í Manor stofnast reikningur í DK og bókast um leið. Nýir viðskiptavinir stofnast einnig. Út fer rafrænn reikningur og pdf í tölvupósti, eftir því hvernig það er stillt í DK. Manor sækir svo pdf af sölureikningnum og er hann aðgengilegur í Manor.
Allt um tenginguna, hvað hún gerir nákvæmlega og hvernig eigi að setja hana upp má sjá hér.
Payday
Manor tengist beint við Payday í gegnum vefþjónustutengingu. Um leið og reikningur er gerður í Manor stofnast reikningur í Payday og bókast um leið. Nýir viðskiptavinir stofnast einnig. Út fer rafrænn reikningur og pdf í tölvupósti, eftir því hvernig það er stillt í Manor. Manor sækir svo pdf af sölureikningnum og er hann aðgengilegur í Manor.
Allt um tenginguna, hvað hún gerir nákvæmlega og hvernig eigi að setja hana upp má sjá hér.
Regla
Manor tengist beint við Reglu í gegnum vefþjónustutengingu. Um leið og reikningur er gerður í Manor stofnast reikningur í Reglu og bókast um leið. Nýir viðskiptavinir stofnast einnig. Út fer rafrænn reikningur og pdf í tölvupósti, eftir því hvernig það er stillt í Reglu. Manor sækir svo pdf af sölureikningnum og er hann aðgengilegur í Manor.
Allt um tenginguna, hvað hún gerir nákvæmlega og hvernig eigi að setja hana upp má sjá hér.
Business Central - origo tenging
Manor tengist BC í gegnum Unimaze skeytamiðlun. Sú samþætting er afurð af samvinnu Manor, Unimaze og Origo sem sér um BC. Reikningar eru gefnir út í Manor, fara beint þaðan til skeytamiðlara sem sendir þá rafrænt og/eða í tölvupósti, og því næst fara þeir inn í BC til bókunar. Gjaldareikningar eru lesnir inn í unimaze og fara beint inn í Manor á viðeigandi verk og einnig inn í BC til bókunar til gjalda.
Business Central - Bein tenging
Manor tengist BC í gegnum vefþjónustutengingu. Um leið og reikningur er gerður í Manor stofnast reikningur í BC og bókast um leið. Nýir viðskiptavinir stofnast einnig. Út fer rafrænn reikningur og pdf í tölvupósti, eftir því hvernig það er stillt í BC. Manor sækir einnig greiðslustöðu reikninga og birtir í Manor.
Vantar eitthvað?
Við erum stöðugt að fjölga samtengingum við önnur kerfi og hlökkum til næsta verkefnis.
Ef þú ert með hugmynd, heyrðu þá í okkur og við skoðum málið.