🥳 Myndletur í Manor 🎊
Litlar myndir í texta eru orðnar vinsælar og nota flestir slík tákn á hverjum degi í einhverju samhengi. Sumir nota enska heitið emoji yfir þetta fyrirbæri en aðrir nýirði eins og tákn, tjánk, lyndistákn, stafræn táknmynd o.s.frv. Allt er þetta þó lýsing á myndletri sem í nútímanum blandast við hefðbundið letur og eru skiptar skoðanir á þeirri þróun eins og öðru í tungumálinu.
En hvernig sem á það er litið er hægt að nota myndletur í Manor 🙂
Verkheiti sem grípa augað 🌴
Hægt er að nýta myndletur til að skerpa á verkheitum og aðstoða við aðgreiningu þeirra. Einnig verður fljótlegra að finna verkin þegar viðeigandi myndletur er notað. Hér er dæmi um innra verk sem er fyrir sumarfrísskráningu og skemmtileg tilvísun í afslöppun komin í verkheitið.
Verkþættir með tákni 🏗️
Þá er hægt að nota myndletur í heitum verkþátta til að gefa þeim góða vísun í það sem verkþátturinn snýst um.
Tímafærslur með broskalli 🙂
Hægt er að nota myndletur í öllum tegundum af færslum, hvort sem það er tíma-, vöru-, aksturs-, kostnaðar- eða dagpeningafærsla. Hægt er að koma merkingu betur til viðtakanda með því að setja myndletur í bland við textalýsingu. Helst er þó algengt að nýta myndletur í innri lýsingu á færslum sem aðeins eru ætlaðar til lesturs innanhúss.
Hvernig geri ég tákn á lyklaborði?
Flestir eru vanir að geta tákn á snjalltækjum þar sem þau eru nokkuð aðgengileg í lyklaborði tækjanna. En á tölvum þarf að kunna að kalla fram viðmótið. Til allrar lukku er það mjög einfalt og venst hratt.
Windows
Á windows tölvum þarf að smella á windows hnappinn og punkt samtímis. Þetta má gera hvar svo sem unnið er í texta.
Apple
Á Apple tölvum þarf að smella á Ctrl + Command + Bilslá samtímis. Þetta má gera hvar svo sem unnið er í texta.