Lifandi áhættustýring í verkbókhaldi
Við erum stolt af því að kynna til leiks fyrstu áhættustýringu verkbókhalds þjónustufyrirtækja hér á landi sem innbyggð er í verkbókhaldskerfið sjálft. Nú geta stjórnendur sem eru með Manor verið þess vissir að óvæntar uppákomur í verkbókhaldi eru lágmarkaðar og fátt kemur á óvart. Ekki er beðið eftir úttektum eða keyrslum heldur sjá stjórnendur í rauntíma ef eitthvað þarf að kanna nánar.
Lifandi vöktun
Þetta er einfalt og þægilegt. Notendur skrá mikið af gögnum á hverjum degi, sumar aðgerðir eru þess eðlis að rétt væir að skoða þær nánar og þá vita stjórnendur af því um leið. Manor lætur vita svo stjórnandinn þurfi ekki að grúska eða leita. Hér sjáum við til dæmis yfirlitsmynd stjórnandans sem stýrir teyminu Rekstrarráðgjöf. Við sjáum strax að við suma notendur eru atriði sem þyrfti að skoða nánar.
Atriði til skoðunar
Þegar Manor greinir eitthvað sem þarf að kanna nánar er það dregið fram á greiningarborði stjórnenda og þeir geta smellt á atriðin hjá viðkomandi starfsmanni og fengið nánari upplýsingar.
Greining atriða
Atriði til skoðunar er atburður sem Manor áhættustýringin telur að sé vert að skoða nánar. Dæmi eru óvænt afskrift, tilfærsla á færslum á milli verka, breyting á kjörum, o.s.frv. sem gætu haft áhrif á tekjur verka.
Hvert atriði er greint svo stjórnandi sjái skýrt áhrif þess.
Innri vinna
Stjórnandi sér strax hversu mikið er að fara í innri vinnu hjá notendum og getur fylgst með breytingum í þeim efnum sem þyrfti að skoða nánar.
Áralöng reynsla
Við þróun á áhættustýringunni nýttum við reynslu og þekkingu af verkbókhaldi margra af stærstu fyrirtækjum landsins (+400 notendur) og náinni samvinnu við stjórnendur þeirra fyrirtækja. Nefna má nokkur lykilatriði sem Manor kemur með að borðinu.
Samræmd mæling á áhættu
Þegar áhættur eru skráðar og metnar með stöðluðum hætti er auðveldara að bera saman aðstæður, uppfæra verklag og fylgjast með þróun. Notendur fá leiðbeiningar og forsendur án þess að þurfa að finna upp hjólið aftur og aftur.Sýnileiki sem leiðir til ábyrgðar
Þegar áhættur, forsendur og mótvægisaðgerðir eru skýrt sýnilegar í kerfi verður ábyrgð skýrari. Stjórnendur sjá strax hvað gerðist, hver gerði það, hvernig hann gerði það og getur gripið strax til aðgerða.Tenging við verk og verkþætti
Þegar áhætta og atriði til skoðunar eru tengd beint við viðskiptavini, verk og verkþætti verða áhrifin skýrari og einfaldara að lesa í aðstæður. Þetta tryggir að samhengi er skýrt og hægt að bregðast við eftir því.Auðveldara að tryggja gæði
Með lifandi eftirliti í Manor getur stjórnandi betur tryggt gæði verka sem unnin eru hjá fyrirtækinu. Það sem upp kemur er leyst strax og áhrif á framvindu verka, viðskiptasambönd o.fl. eru lágmörkuð.
Til mikils að vinna
Allir sem hafa stýrt verkum þar sem margir eru að skrá tíma, mikið er um kostnað, o.s.frv. þekkja vel hversu miklu máli skiptir að grípa atvik sem allra fyrst. Mistök í skráningum geta lækkað tekjur verkefna verulega og þar með skaðað rekstur fyrirtækisins. Verstu tilvikin geta svo kostað fyrirtækið viðskiptin.
Hvernig kveiki ég á þessu?
Til að stjórnandi sjái greiningargögn þarf hann að...
Vera einn af stjórnendum fyrirtækisins
Skilgreindur sem stjórnandi fyrirtækisins undir Manor > Stjórnun > Fyrirtæki > Fyrirtæki ehf > Umsjónarmenn fyrirtækisVera stjórnandi í deild/sviði/teymi
Undir Manor > Stjórnun > Deildir má setja upp skipulag sem hentar fyrirtækinu. Þar má skilgreina stjórnendur sem þá geta séð greiningu um það sem undir þeim í skipulaginu. Teymisstjóri gæti séð sitt teymi eingöngu en sviðsstjóri gæti séð öll teymin á sviðinu.
Þegar þetta er klárt sér stjórnandinn gögnin undir Manor > Yfirlit sem er hjá mörgum upphafssíða eftir innskráningu.
Þarftu aðstoð? Sendu okkur línu á adstod@manor.is og við hjálpum þér að setja þetta upp.
Áhættustýring á ekki að vera yfirþyrmandi eða leiðinleg. Manor gerir verkefnið einfalt og aðgengilegt með nálgun sem allir stjórnendur geta nýtt sér — án þess að draga úr hraða eða sveigjanleika.