Manor sér um að útbúa helstu skjöl sem lögmenn þurfa sem tengjast kröfum. Aðeins 2 mínútur tekur að útbúa einfalda stefnu. Sama gildir um fjölda skjala í Manor sem einfalda lögmönnum lífið.
Read MoreEfnisveita
Efnisveita
Þá er komin út stærsta uppfærsla Manor í langan tíma. Mikil gleði er meðal notenda sem hafa kynnst nýju útgáfunni enda búið að uppfæra nær alla þætti kerfisins, bæta við mörgum nýjum möguleikum og fjölga leiðum til þess að auka tekjur.
Hér er kominn listi yfir fimm vinsælustu hugbúnaðarkerfi íslenskra lögmanna. Þú sparar mikið fé með því að nálgast málin rétt.
Við höfum séð í okkar þjónustu og hjá okkar viðskiptavinum nokkrar einfaldar leiðir til þess að auka mjög þjónustustig og ánægju viðskiptavina. Það geta í raun allir staðið sig í þessum efnum og hér koma fimm góð atriði.
Lögmenn skrifa mikið og oftar en ekki undir tímapressu. Hér höfum við tekið saman tíu ráð sem nýtast vel við slíkar aðstæður.
Oft þarf að opna á nýjar leiðir þegar samskiptavenjur breytast. Við fundum á yngri notendum Manor að þeim fannst þægilegra að senda skilaboð á fésbókarsíðu Manor en að hringja í þjónustuverið þegar þeir höfðu spurningar. Það er margt sem lögmenn geta lært af þessari þróun sem gæti aukið viðskipti.
Þessi spurning hljómar einföld en þegar við spyrjum hennar standa flestir á gati. Við spyrjum t.d. hvað stofan eigi mikið útistandandi, hversu gamlir tímarnir séu sem eigi eftir að rukka, hver eigi mest útistandandi o.fl. Hér eru helstu svörin sem við fáum.